1 / 43

Vísindi og Nýöld

Vísindi og Nýöld. bólusetningar eða blómadropar?. Svanur Sigurbjörnsson læknir Fyrir Res Extensa 21. nóv ‘07. Hvernig lá leiðin hingað?. 1880 – Louis Pasteur kemur með bóluefni gegn hundaæði

bishop
Download Presentation

Vísindi og Nýöld

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Vísindi og Nýöld bólusetningar eðablómadropar? Svanur Sigurbjörnsson læknir Fyrir Res Extensa 21. nóv ‘07

  2. Hvernig lá leiðin hingað? • 1880 – Louis Pasteur kemur með bóluefni gegn hundaæði • Robert Koch og Pasteur leggja grunninn að bakteríufræðum og staðfesta með tilraunum að bakteríur valda sýkingum • Koch finnur berklabakteríuna 1882 og kóleríubakteríuna 1883 • Alexander Fleming uppgötvar penicillin 1928 Louis Pasteur

  3. Þríþættur hernaður gegn sýklum • Sóttvarnir umbyltu skurðlækningum og fæðingarhjálp (Ignaz Semmelweis, Joseph Lister)Verndun vatnsbóla og lagning ræsa. • Sýklalyf gerðu lækningu mögulega á hverri ólæknandi sýkingunni af fætur annarri • Ónæmissetningar komu í veg fyrir illræmdar veirusýkingar og bakteríusýkingar Bygging Penicillins

  4. 20. Öldin og mannfjöldasprengingin • Afleiðing – Geigvænlegar framfarir og minnkun ungbarnadauða, barnadauða og mæðradauða • Sögulega óþekkt aukning í mannfjölda, fyrst í iðnveldunum og svo í minni ríkjum í kring. • Sjöföld aukning í mannfjölda frá 1800!

  5. Fólk dásamar tækni og vísindi • Almúginn vissi lítið um fræðin á bakvið þessi stórkostlegu nýju úrræði en sá þau virka • Lækningar vísinda virkuðu í nær hvert skipti og óháð hver átti í hlut – þær fóru ekki í manngreiningarálit og nutu því mikillar hylli. • Pólitískar framfarir tryggðu að allar stéttir fengu að njóta meðferðar – ríkisrekin þjónusta • Bólusótt útrýmt með samhentu átaki fyrirum 30 árum Mynd: Barn með bólusótt

  6. Síðari hluti 20. aldar – hægari framfarir • Eftir mannfjöldasprenginguna komst á nýtt jafnvægi hægrar fjölgunar vegna getnaðarvarna • Flestir höfðu gleymt kukli og göldrum. Frjálsari fóstur-eyðingalöggjöf 1938-1969 gerði síðustu skottulæknana ónauðsynlega • Sums staðar voru greinar eins og homeopathia bannaðar (t.d. Íslandi) þar sem þær voru taldar óvísindalegar. Verkfæri til fóstureyðingar

  7. Faraldar sýkinga hverfa nánast alveg 500.000 --- Fjöldi tilfella mislinga í USA fyrir og eftir bólusetningar

  8. Upplýsingaöld – uppfyllingu vantar • Aukin menntun almennings og minnkuð forræðishyggja stjórnvalda og menntastétta • Tíðrætt að venjubundin vísindi hafa ekki veitt öll svör við forvörnum og sjúkdómum • Illa gengur að lækna krabbamein og sjúkdóma miðtaugakerfisins utan fárra góðra undantekninga. • Bera fer á menningarsjúkdómum sem fólk kennir tæknivæðingu, velmegun og mengun um. T.d. lungnakrabbi og kransæðastífla

  9. Nýir sjúkdómar velmegunar

  10. Biturð í garð nútímans, 1980 -> • “Nútíminn er trunta!” Fólk skynjar bakslag • “vísindin útskýra ekki allt!” • Stjórnleysi í notkun vísindalegra úrræða • Ofnotkun lyfja, geðveikt fólk eins og svefngenglar • Róandi og verkjadeyfandi lyf reynast fíknmyndandi • Ofnotkun skordýraeiturs, Vandmál með spilliefni (PCB) • Krafan um framleiðni og hagkvæmni veldur niðurskurði og styttri viðtalstímum lækna • Fræðsluhlutverk lækna verður útundan og læknar vinna óheyrilega langar vinnuvikur

  11. Minna traust og aukinn glundroði • Fólk fer að leita eigin leiða – sjálfshjálparbækur • Fjölmiðlar birta misvísandi vísindaniðurstöður • Fjölmiðlar svala forvitni fólks með umfjöllun um “óhefðbundnar lækningar”. Dulúð selur • Rannsóknarblaðamennska nær til sviða stjórnmála og fjármála en ekki heilbrigðis • Læknar láta lítið í sér heyra og vilja ekki styggja fólk í náttúrulækningageiranum. • Fæðubótarbransinn og kuklarar nýta sér tómarýmið, vantraustið og svo internetið.

  12. Vandi frelsisins • Í svo opnum þjóðfélögum sem Vesturlönd eru nú er meira rými fyrir mistök jafnt sem framfarir • Ef menntakerfið býr ekki einstaklingana undir lævísi markaðshyggjunnar og framapoti gúrúa með kennslu í gagnrýnni hugsun og rökfræði mun fórnarlömbum kukls og blekkinga fjölga • Áður sáu stjórnvöld um að vernda fólk en sú vernd er ekki lengur velkomin

  13. Palli var einn í heiminum • Í nútímanum hefur fólk mikiðfrelsi eins og Palli hafði... • ...en er útkoman eins og vonast er til? • Höfum við ef til vill gleymt í öllum leiknum að rækjaskyldur okkar og vandabetur til verka, þ.e. kunnumvið að greina hismið frá kjarnanum?

  14. Haldvillur um bólusetningar • “Meirihluti þeirra sem fá sjúkdóminn hafa verið bólusettir” - Rangt. Þetta er rangtúlkun á faraldursfræðilegum tölum. • “Sumar framleiðslulotur eru hættulegri en aðrar. Foreldrar ættu að fá upplýsingar um þær og forðast þær” – Rangt. Þetta er ekki tölfræðilega stutt, t.d. sum bóluefni eru gefin yngri börnum sem hafa hærri dánartíðni af náttúrulegum orsökum. • “DTP bóluefnið veldur vöggudauða (SIDS)”.Rangt. Rannsóknir (1980-1990) sýndu annað hvort engin tengsl eða hreinlega minnkaða dánartíðni bólusettra.

  15. Stinga höfðinu í sandinn • “Búið er að eyða þessum sjúkdómum svo barnið mitt þarf ekki bólusetningu”Rangt - Líkurnar eru litlar á smiti þar sem skipulagðar bólusetningar hafa tíðkast, en samt nægar til að allir eigi að fá bólusetningu. Aðeins bólusótt er algerlega horfin. Barn dó nýlega í Chicago úr taugaveiki (diphteria). Þá hafa ferðalög til vanþróaðra landa aukist gífurlega og þar er fólk útsett fyrir þessum sjúkdómum.

  16. Antigen – hvað er nú það? • Antigen eða mótefnisvaki er það efni í sýklinum, t.d. á yfirborði baktería sem ónæmiskerfi líkamans lærir að þekkja og bregðast við, t.d. með framleiðslu mótefna (antibodies) eða árás átfruma.

  17. Mótefnisvakar (antigen) og bóluefni • Mótefnisvakarnir eru sértækir (einkennandi) fyrir eigendur sína, sýklana og því má nota þá til gerðar bóluefnis • Bóluefnið inniheldur því mótefnisvakana en ekki sýklana sjálfa nema í þeim tilvikum þegar veiklaðir eða dauðir sýklar eru notaðir. • Bólusetning er því eins konar “plat-sýking” sem kennir ónæmiskerfinu að þekkja sýkilinn og hafa tilbúið sérhæft vopnabúr gegn honum við næstu heimsókn

  18. Samtrygging almennra bólusetninga • Vernda þarf þá sem geta ekki fengið bólusetningar t.d. vegna ofnæmi fyrir ákveðnum bóluefnum eða ónæmisgalla. • Faraldrar ná sér ekki á strik þegar háu hlutfalli bólusettra einstaklinga er náð – þannig myndast ákveðin samtrygging og óbólusettir sleppa við að vera útsettir fyrir smiti. • Þessi samtrygging getur hrunið ef of margir afþakka bólusetningar

  19. Ofhleðsluóttinn • “Hættulegt er að gefa mörg bóluefni í einu vegna ofhleðslu ónæmiskerfisins” • Rangt - Ónæmiskerfinu er eðlilegt að eiga við fjölda antigena í einu, t.d. 25-50 ný antigen vegna “streptókokka hálsbólgu”. Rannsóknir sýna að fjölbólusetningar eru öruggar og virka jafn vel. “Dauð” bóluefni má gefa e. 2 mán aldur barns og lifandi veikluð e. 12 mán. aldur

  20. Hræðsluköll! • “Þau geta valdið langtíma skaða sem við vitum jafnvel ekki af”Undarleg staðhæfing. Tillaga mín: Á meðan enginn slíkur skaði er kominn í ljós ættum við bara að sofa áhyggjulaus. Búum ekki til áhyggjur • “Bóluefni geta valdið hættulegum aukaverkunum, jafnvel dauða” ->

  21. Vaccine Adverse Events Reporting System • Niðurstaða rannsóknanefndar í Bandaríkjunum: • - “Of all deaths reported to VAERS between 1990 and 1992, only one is believed to be even possibly associated with a vaccine. The Institute of Medicine in its 1994 report states that the risk of death from vaccines is extraordinarily low.” • Þýðing – Aðeins eitt dauðsfall var mögulega tengt bólusetningum á árunum 1990-1992. Niðurstaðan er sú að hættan á dauðsfalli vegna bólusetningar er alveg einstaklega lítil.

  22. Áhætta – sjúkdómurinn eða bóluefnið?

  23. Áhætta – sjúkdómurinn eða bóluefnið?

  24. Vitnisburður barnaskoðunar hérlendis • Nokkrar hjúkrunarkonur og læknar spurðir sem hafa gefið bóluefnin í 30-40 ár á heilsugæslustöð hérlendis: • Ekkert þeirra man eftir lífshættulegum aukaverkunum af gjöf margra þúsunda bóluefna sem þau hafa gefið. • Aukaverkanir sem þau nefna: hiti og væg útbrot á stungustað er það sem kemur upp öðru hvoru en sjaldan þó.

  25. Fleiri haldvillur • “Óþarft er að bólusetja gegn hlaupabólu því að hún er skaðlítil” • Rangt - Heilabólgur og taugaskemmdir af endursýkingu hlaupabólu sem kallast “ristill”, eru ekki saklausar. Fólk getur orðið blint eða átt í langtíma verkjavandamáli. Ég sá tilvik blindu á síðasta ári. • “Bólusetning gegn lifrarbólgu B veldur langvinnum heilsufarsvanda m.a. MS (multiple sclerosis)” • Rangt – tölfræðin og bestu gögn sýna: • Ofnæmislost - 1:600.000, engin dauðsföll, engin tengsl við MS

  26. MMR og Einhverfa? • “Bólusetning getur valdið einhverfu”. • Rangt – Einhverfa greinist fyrst þegar börn eru komin á 18-24 mánaða aldur og því er það á svipuðum tíma og MMR bóluefnið er gefið. Það er því fylgni í tíma en engar sannanir liggja fyrir um orsakatengsl. Þessi kvittur byrjaði 1998 vegna lítillar rannsóknar sem velti tengslunum fyrir sér en studdi ekki. • In July 2006, a study of 27,749 Canadian children ruled out an association between pervasive developmental disorder and MMR vaccinations • Þýðing: Kanadísk rannsókn sem kom út í júlí 2006 og byggir á athugun á 27.749 kanadískum börnum útilokaði tengsl á milli MMR bóluefnisins og einhverfu.

  27. Snefilmagn af kvikasilfri (Hg) • “Kvikasilfur í bóluefnum getur skaðað börnin” Rangt – Snefilmagn af Hg er sett í formi thimerosal í nokkrar tegundir bóluefna til rotvarna. • Hg veldur ekki einhverfu. • Rannsókn á 60 börnum þar sem 20 þeirra var gefið bóluefni með Hg og 40 án, sýndi: • Ómælanlegt magn Hg í blóði beggja hópa • Hins vegar var það mælanlegt í hægðum Hg-hópsins. • Hið örlitla Hg er því afeitrað í lifrinni og skilst út með gallvökvanum í hægðirnar og út úr líkamanum

  28. Fyrir og eftir – USA sem dæmi

  29. Hvað er kukl eða gervivísindi? • Kukl felur í sér heilsutengdar staðhæfingar um greiningaraðferðir, eðli líkamsstarfsemi eða sjúkdóma og lækningaraðferðir. • Þessar staðhæfingar kuklsins ólíkt kenningum vísindanna eru ekki byggðar á • raunsannri athugun, • fullri kröfu um hlutlægni • Fyrri þekkingu sem viðurkennd er um lífræna ferla • Tvíblindum stórum rannsóknum • Þeirri væntingu að rannsókn á tilgátunni gæti reynst neikvæð, þ.e. að um enga verkun eða tengsl sé að ræða

  30. Berum vísindi og gervivísindi saman

  31. Berum vísindi og gervivísindi saman

  32. Berum vísindi og gervivísindi saman

  33. Berum vísindi og gervivísindi saman

  34. Berum vísindi og gervivísindi saman

  35. Kukl - rakalausar aðferðir • Aðferðir sem stangast á við viðurkennd grundvallarfræði vísindanna skal flokka sem óskynsamlegar eða afsannaðar frekar en “til reynslu”. • Þannig þarf ekki að rannsaka allan rakalausan hugarburð sem fólk kemur fram með. “Sögusögnum og jafnvel staðhæfingingum málsmetandi fólks um fljúgandi spagetti-skrýmslið var erfitt að trúa þar til sönnunargögnin fundust í garðinum hennar Láru. Spaggettíið í skrýmslinu hafði trénað en það var ekki um villst að þarna var það komið!!!” “Í ljós kom að forn Kínversk speki spáði fyrir um þessa atburði. Þetta er rétt og ekkert hefur afsannað það” – Dr. Bett Lára hafði ekki búist við þessu en þarna var Spaggettískrýmslið

  36. Skipulag kukls • Misnotkun vísindalegra hugtaka og aðferða. • Kuklarar gerast æ kræfari við að ljúga til um tilurð kenninga sinna eða iðka gervirannsóknir (sbr. Myglusveppsfárið og Dr. Mercola). • Dæmi: “Lithimnufræðier leið sem á vísindalegan máta getur gefið heildrænar upplýsingar um ástand líkamans og ráðlagt um meðferðir.” Af vefsíðu LH “Fyrirgefðu en þú hefur slæmt harðlífi!

  37. Rökvillur kuklsins - valkvæmni • Valkvæm hugsun – óöguð og óþjálfuð hugsun í að meta hluti hlutlaust veldur því að skoðaður er aðeins sá hlutur sem athyglin beinist að. • T.d. fólk á “blóðflokkamataræði” leið betur eftir mánuð enda hafði það lést umtalsvert á fæði sem var hitaeiningasnautt. (óháð blóðflokkum). • “Sannanir kuklara” – sögur einstaklinga sem hafa prufað aðferðir þeirra. Af hverju leyfa lyfjafyrirtæki sér ekki að auglýsa þannig?

  38. Rökvillur kuklsins - statfestingarárátta • Staðfestingartilhneigingin vísar til einnar tegundar valkvæmrar hugsunar og á viðþá tilhneigingu fólks að taka eftir og leita einungis að því sem staðfestir skoðanir þess, en hunsa, leita ekki eftir eða gera lítið úr mikilvægi þess sem hrekur sömu skoðanir. • Sbr. Það fólk sem vill benda á meinta skaðsemi bólusetninga er mikið í mun um að finna líka allt annað að þeim og segja þær ekki virka eða að eitthvað annað geti komið í stað þeirra.

  39. Rökvillur kuklsins – löngum þekktar • “Það er eilífur og furðulegur annmarki á mannlegum skilningi hvað við heillumst miklu meira af staðfestingum en höfnunum”Francis Bacon (1561-1626) • T.d. goðsögnin um “fleiri innlagnirá spítala við fullt tungl!” Fólk sem fær dálæti á einhverriútskýringu hefur tilhneigingutil að verja hana þrátt fyrir yfirgnæfandi rök fyrir öðru. Francis Bacon átti stóran þátt í þróun vísindalegra aðferða.

  40. Rökvillur kuklsins – ónauðsynleg krydd • Gervifræði gervivísindanna bæta ekki neinni nytsamlegri útskýringu við heimsmyndina eða eðli náttúrunnar. • T.d. að “orkustöðin í okkur búi í spjaldbeininu” hjálpar ekki við að skilja eðli orkuefnaskipta eða hvaða hlutverki spjaldbeinið gegni. • Tilgátur eru ekki bættari með skrauti. Þær eiga að vera eins einfaldar og hægt er, en ekki einfaldari en svo. Sbr. “Occam’s razor”.

  41. Og aftur að spurningunni...

  42. Palli var einn í heiminum • Í nútímanum hefur fólk mikiðfrelsi eins og Palli hafði... • ...en er útkoman eins og vonast er til? • Höfum við ef til vill gleymt í öllum leiknum að rækjaskyldur okkar og vandabetur til verka, þ.e. kunnumvið að greina hismið frá kjarnanum?

  43. Nokkrar heimildir: • www.quackwatch.org • http://en.wikipedia.org/wiki/MMR_vaccine_controversy • http://en.wikipedia.org/wiki/Occham%27s_Razor • http://en.wikipedia.org/wiki/Thiomersal_controversy • http://www.cdc.gov/vaccines/ • http://www.cdc.gov/vaccines/vac-gen/side-effects.htm • http://www.meningvax.org/files/video-meningitis-kill-or-cure.htm • http://www.landlaeknir.is/Pages/855 • http://www.landlaeknir.is/pages/856 • http://www.arna.is/bolus-arna.htm - Arna varar við bólusetningum • http://www.mercola.com/ - lærimeistari Örnu (Dr. ??? í sölumennsku?) Nóv 2007 – Svanur Sigurbjörnsson læknir

More Related