1 / 29

Handbók um ritun og frágang Kafli 9

Handbók um ritun og frágang Kafli 9. Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir. Tilvitnanir.

summer
Download Presentation

Handbók um ritun og frágang Kafli 9

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Handbók um ritun og frágangKafli 9 Framhaldsskólinn á Húsavík Ísl 212 Herdís Þ. Sigurðardóttir

  2. Tilvitnanir • Í kaflanum er sýnt hvernig ganga á frá öllum algengustu tegundum tilvitnana og einnig hvernig fara skuli að þegar höfundur ákveður t.d. að fella úr beinni tilvitnun eða laga tilvitnun að texta. • Enn fremur er gerð grein fyrir óbeinum tilvitnunum.

  3. Beinar tilvitnanir • Bein tilvitnun er hluti úr heimild tekinn orðréttur upp. • Beinar tilvitnanir verða að hafa tilgang; þær verða að draga fram aðalatriði eða segja eitthvað sem ritari treystir sér ekki til að endursegja. • Beinar tilvitnanir skal nota í hófi!

  4. Beinar tilvitnanir, frh. • Beinar tilvitnanir í heimild skal taka orðrétt og stafrétt upp úr texta. • Greinarmerkjasetningu verður líka að taka nákvæmlega upp og gæta þess að greinarskil haldi sér ef um þau er að ræða. • Öll frávik í stafsetningu, s.s. notkun z, verða að koma fram.

  5. Beinar tilvitnanir, frh. • Augljósar prentvillur eru líka stundum teknar óbreyttar upp úr texta en þá er oft bætt skáletruðu svo í hornklofa inn í textann á eftir orðinu sem skakkt er ritað: • Höfundur greinarinnar segir að „ástæður fyrir málbreytinu [svo] séu ókunnar”. • Í seinni tíð er mælt með því að augljósar prentvillur séu leiðréttar en þá er rétt að geta þess í neðanmálsgrein.

  6. Beinar tilvitnanir, frh. • Undantekning er leyfð frá því að taka stafrétt upp úr heimild ef bein tilvitnun kemur á eftir punkti eða tvípunkti. Þá má byrja tilvitnun á stórum staf þótt notaður sé lítill stafur í heimild. • Á sama hátt má fara með stóran staf í heimild. • Ef bein tilvitnun kemur sem eðlilegt framhald setningar á undan má breyta stórum staf í lítinn.

  7. Beinar tilvitnanir, frh. • Textar frá fyrri tíð, þar sem gamall ritháttur orða er viðhafður, eru teknir upp án athugasemda. • Þetta á líka við um texta þar sem höfundar fylgja augljóslega eigin stafsetningarreglum.

  8. Stutt bein tilvitnun • Stutt bein tilvitnun (ein til þrjár línur) er felld inn í meginmál innan tilvitnunarmerkja eða gæsalappa ásamt þeim greinarmerkjum sem tilvitnuninni fylgja. • Nota ber íslenskar gæsalappir ef þess er nokkur kostur.

  9. Stutt bein tilvitnun, frh. • Ef tilvísun er höfð í sviga inni í textanum er sviginn hafður utan við gæsalappir en málsgreinin lokast með punkti á eftir sviganum: „Efþvíerþannigfariðaðmenningfjölskyldusésúsama og skólamenninginheldurmenningar-nám og máltakabarnsinsyfirleittáframánerfiðleikaeðaárekstra” (Elsa Sigríður Jónsdóttir 2000:101).

  10. Stutt bein tilvitnun, frh. • Annars lokast gæsalappir á eftir greinarmerkjum sem fylgja tilvitnuninni: Fólkið hrópaði „Útaf með dómarann!” og þusti inn á völlinn.

  11. Löng bein tilvitnun • Langar samfelldar tilvitnanir er betra að draga inn, þ.e.a hafa breiðari spássíu beggja vegna eða vinstra megin. • Þá eru gæsalappir óþarfar og því ekki notaðar. • Inndregin tilvitnun er oft höfð með smærra letri og/eða minna línubili til að hún skeri sig enn betur úr.

  12. Löng bein tilvitnun, frh. • Milli inndreginnar tilvitnunar og meginmáls er gjarnan haft lengra línubil en er í meginmáli: Súrrealistar leggja ekkert upp úr röklegu samhengi þeir smá allar reglur um málfræði og listform, leggja áherslu á óheftan leik hugsunarinnar og trúa á almætti draumsins þannig að mörkin milli hans og raunveruleikans virðast numin brott (Eysteinn Þorvaldsson 1980:34-35). • Ef greinaskil eru í inndreginni tilvitnun eiga þau að halda sér, hvort sem er í upphafi tilvitnunarinnar eða inni í henni.

  13. Áhersluletur í beinni tilvitnun • Ef höfundur vill leggja áherslu á eitthvað í tilvitnun mð undirstrikun eða leturbreytingu er um tvær leiðir að velja: • Að geta þess innan hornklofa strax á eftir orðunum sem breytt er. • Að geta um leturbreytinguna innan sviga í lok tilvitnunarinnar.

  14. Áhersluletur í beinni tilvitnun, frh. • Leturbreytingar getið í hornklofa strax á eftir orðunum sem breytt er: Nokkur formbreyting var gerð á þessu kerfi árið 1974. Þá var allt skólastig barna og unglinga sameinað undir heitinu grunnskóli og gert ráð fyrir að allt nám í honum yrði skylda [leturbreyting höfundar], til 16 ára aldurs (Bragi Guðmundsson og Gunnar Karlsson 1986:360).

  15. Áhersluletur í beinni tilvitnun, frh. • Leturbreytingar getið innan sviga í lok tilvitnunar: Stundum getur þetta verið rétt, en oft er furðumikill munur framburðar í sama héraði, einkum ef það liggur á mótum mállýzkna og þó að svo hagi ekki til, getur verið um margs konar mun að ræða í ýmsum minni háttar atriðum (Björn Guðfinnsson 1946:128; leturbreyting höfunda).

  16. Fellt úr beinni tilvitnun • Stundum skiptir aðeins hluti beinnar tilvitnunar máli fyrir ritsmíðina. • Þá má stytta tilvitnunina með því að setja þrjá punkta, . . . með einu stafabili á milli í staðinn. • Styttingin má aldrei raska merkingu klausunnar. Þeir höfðu í heiðri kveðskap um ýmis efni og einkennilegt skáldamál, þeir lögðu stund á braglist og bragfræði . . . höfðu í heiðri heiðin goð eða forna og nýja kappa,og voru um þessi efni mörg kvæði, sem í hávegum voru höfð (Einar Ól. Sveinsson 1962:25).

  17. Fellt úr beinni tilvitnun, frh. • Ef stytting er á eftir greinarmerki kemur þrípunkturinn á eftir því: Hún var svarteyg og stóreyg, . . . og allt yfirbragð hennar var hið vingjarnlegasta.

  18. Útskýringar í beinni tilvitnun • Útskýringar í tilvitun skulu hafðar innan hornklofa: Ljóðskáld sem venjulega er talinn einna listfengastur allra skálda á síðari hluta 20. aldar. Gaf þó aðeins út fjórar ljóðabækur, Kvæði (1944), Á Gnitaheiði (1952), Lauf og Stjörnur (1966) og Hauströkkrið yfir mér (1979). Fyrir hina síðarnefndu fékk hann ,[Snorri Hjartarson] Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1981 (Heimir Pálsson 1999:77).

  19. Bein tilvitnun felld að texta • Þess skal vandlega gætt að bein tilvitnun falli málfræðilega að texta ritgerðarinnar. • Stundum nægir að hnika til texta ritsmíðarinnar til að fella hann að tilvitnun en stöku sinnum þarf að bæta inn orði (innan hornklofa) til að tilvitnun falli vel innan textans: Hann valdi fyrst og fremst fólk af blendingssvæðum og harðmælissvæðum „og auðvitað [var] á þeim einum að græða, er höfðu blandaðan framburð” (Björn Guðfinnsson 1946:225).

  20. Bein tilvitnun í ljóð • Þegar vitnað er í ljóð er rétt að rita það á sama hátt og gert er í heimild þannig að ljóðlínur haldi sér. • Ef línur eru of langar er hægt að draga þær inn um fjögur stafabil og það sem „gengur af” er haft fjórum bilum innar: Það var stolt vort og dyggð, það var aðals og einkennis merki Ónafngreinds stjórnmálaflokks, sem menn kannast við. Steinn Steinnarr (1982:129)

  21. Bein tilvitnun í ljóð, frh. • Ef sleppt er úr einni eða fleiri ljóðlínum er það sýnt með þrípunkti: Freyr Ég hef sagt í þínu nafni við hjón: Notið aldrei maka yðar í þolfalli umgangist aldrei konuna í þágufalli lítið aldrei á börn yðar í eignarfalli eða líkt og afbrigðilega sögn . . . Freyr, heldur þú að algert réttlæti mundi ríkja á jörðinni ef þú máðir þolfallið, þágufallið og eignarfallið úr huga mannkynsins? (Guðbergur Bergsson 1978:9)

  22. Bein tilvitnun í ljóð, frh. • Ef tilvitnun í ljóð er stutt og rúmast í meginmáli má sýna skiptingu milli ljóðlína með skástriki (bil er haft á undan og eftir): Yfir kaldan eyðisand / einn um nótt ég sveima / nú er horfið Norðurland / nú á ég hvernig heima. • Tilvísun í höfund ljóð stendur alltaf utan við síðasta greinarmerki í ljóðinu sjálfu.

  23. Höfundur vitnar í annan höfund • Ef ekki næst í frumheimild þarf ritgerðarsmiður stundum að vísa í orð sem höfundur heimildar hefur frá öðrum: (Álfheiður Dís Stefánsdóttir 2005:251, tilvitnun hennar í Hrafnkel Daða Vignisson 2004:130). • Ágæt regla er að vísa einungis beint í heimildir sem maður hefur í höndunum.

  24. Óbeinar tilvitnanir • Oft fer betur á að endursegja kafla úr heimild en taka hann orðréttan upp. • Þá þarf hvorki gæsalappir né inndrátt. • Samt sem áður þarf að geta heimildarinnar! • Sumir eiga erfitt með að gera sér grein fyrir því hvenær þeir þurfi að vitna til heimildar og hvenær slíkt sé óþarfi. Þá má hafa eftirfarandi í huga: • Þegar um er að ræða almenna þekkingu, sem t.d. er fjallað um í kennslubókum, er ekki ástæða til að geta höfundar sérstaklega. • Að öðrum kosti verður að vísa til heimildarinnar.

  25. Óbeinar tilvitnanir, frh. • Þegar um tilvísun í óbeina heimild er að ræða setja margir sjá eða sbr. á undan tilvísuninni: (sbr. Önnu Þorbjörgu Ingólfsdóttur 2004:9) (sjá Þórunni Blöndal 2005:122) (eins og fram kemur hjá Sennevig, Sandvik og Vagle 1999:181).

  26. Vitnað í erlendar heimildir • Öruggast er að birta bæði frumtexta og þýðinguna þegar vitnað er í erlendar heimildir. • Eðlilegast er að þýða tilvitnunina í ritgerðinni sjálfri þar sem texti ritgerðarinnar er á íslensku. • Erlendi textinn er þá birtur neðanmáls innan gæsalappa og eftir að gæsalappir lokast kemur venjuleg tilvísun í heimild. • Sjá bls. 79.

  27. Neðanmálsgreinar • Best er að hafa neðanmálsgreinar, aðrar en tilvísanir, eins stuttar og hægt er. • Í þeim eiga að vera skilgreiningar hugtaka, skýringar við textann eða efnislegar athugasemdir sem varða textann en eiga ekki beinlýnis heima í meginmálinu. • Tilvísanir í heimildir eru oft hafðar í neðanmálsgreinum. • Flest ritvinnsluforrit bjóða upp á sjálfvirkar neðanmálsgreinar.

  28. Athugagreinar • Athugagreinar gera sama gagn og neðanmálsgreinar en þeim er safnað saman í lok ritsmíðar eða hvers kafla.

  29. Heimildir sem ber að forðast • Velja ber útgefið efni fram yfir óútgefið. • Athuga ber aldur heimilda; yfirleitt er nýrra efni valið fram yfir það sem eldra er. • Sumar gamlar heimildir eru þó verðmætar vegna þess að þær hafa orðið undirstaða fyrir annað sem skrifað hefur verið. • Bæklingar og útprentanir af glærusýningum úr kennslustundum eða fyrirlestrum er ekki heppilegt efni sem heimild. Mælt er með því að leita í heimildir sem gefa fyllri mynd af því sem um er rætt. • Tölvupóstur er alla jafna ekki gildur sem heimild!

More Related