1 / 57

2. kafli

2. kafli. Efni líkamans. Lífræn efni. Allar lifandi verur eru gerðar að mestum hluta úr þremur frumefnum Vetni (H) Súrefni (O) Kolefni (C) Eru þessi efni uppistaðan í líffrænum efnum.

teryl
Download Presentation

2. kafli

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 2. kafli Efni líkamans

  2. Lífræn efni • Allar lifandi verur eru gerðar að mestum hluta úr þremur frumefnum • Vetni (H) • Súrefni (O) • Kolefni (C) • Eru þessi efni uppistaðan í líffrænum efnum. • Lífræn eru flókin efnasambönd úr þessum frumefnum, en eiga það öll sameiginlegt að vera með kolefnisgrind ( C-C-C-C )

  3. Ólífræn efni • Sameindir þar sem ekkert kolefni (C) er, eru vanalega minni og einfaldari að gerð, og kallast ólífrænar sameindir. • Einföldustu kolefnissamböndin, s.s. CO2 og H2CO3 eru líka talin til ólífræna efna.

  4. Ólífræn efni Vatn • Án vatns væri ekkert líf á jörðinni, það er lífsnauðsynlegt efni. • Um 60% af líkamsþunga manna er vatn (fer eftir aldri, kyni og líkamssamsettningu) • Kambhveljur eru um 97% vatn

  5. Vatn Mikilvægi vatns fyrir líkamsstarfsemina • Vatn er mjög góður leysir, þ.e. mörg efni leysast vel í vatni. • T.d. Jónir, loftegundir og ýmis lífræn efni. Flest öll efnaskipti fara fram í vatni • Vatn hitnar og kólnar hægar en flest aðrir vökvar • Þetta kemur í veg fyrir örar hitasveiflur lífverunnar • Vatn er fljótandi á verulegu hitasviði • Innan þessa sviðs fer lífstarfsemin fram, þ.e. í fljótandi vatnsumhverfi

  6. Vatn • Mikil orka fer í að breyta vatni í gufu • Þetta notum við okkur þegar við þurfum að kæla okkur niður  við svitnum • Ís flýtur á vatni • Öfugt við flest önnur efni er fasta formið á vatni (ís) léttari en vökvaformið. Því flýtur ísinn og getur getur einangrað vatnið undir því og verndað lífverurnar fyrir neðan

  7. Dagleg upptaka og losun vatns hjá manni

  8. Vatn • Nýrun sjá um samhæfingu upptöku og losun á vatni • Óhóflegt vatnstap truflar boðfluttning um taugar og leiðir loks til dauða • Menn deyja ef þeir missa um 12-15% af eðlilegu vatnsmagni líkamans

  9. Leyst steinefni • Steinefni (sölt) eru jónir sem eru bæði inn í frumum og á milli þeirra. • + hlaðnar jónir hafa færri rafeindir en róteindir • - hlaðnar jónir hafa fleiri rafeindir en róteindir

  10. Leyst steinefni • Algengust jónir líkamans eru: • Na+ • Cl- • K+ • Ca2+ • HCO3-

  11. Föst steinefni • Auk leystra salta eru í mörgum lífverum föst kristölluð steinefni • Eru þau vanalega hluti af stoðkerfi lífverunnar • Kalsíum Ca+2 og fosfat PO4-3 eru t.d. Uppistaðan í beinum mana og annara hryggdýra

  12. Loftegundir • Ýmsar lofttegundir eru í líkamanum • Þeirra mikilvægastar eru • Súrefni O2, sem stendur fyrir brunanum í frumunni • Koldíoxíð CO2 sem myndast við brunann og koma þarf út úr frumunni

  13. Lífræn efni • Skiptast í einliður og fjölliður • Fjölliður eru stórsameindir, langar keðjur samsettar úr mörgum einliðum. • Einn hlekkur í stórsameindinni kallast því einliða, en stórsameindin öll kallast fjölliða • Lífrænu efnin eru: • Sykrur (kolvetni) • Fita (lípíð) • Prótein • Kjarnsýrur

  14. Sykrur • Fyrstu lífrænu efnin sem verða til við ljóstillifun plantna eru sykrur. • Efnaformúla sykra er (CH2O)n • Minnstu sykursameindirnar eru einliður eða einsykrur. • C3 til C6

  15. Einsykrur • Til eru þrjár einsykrur • Glúkósi (blóðsykur, aðalorkugjafi líkamans) • Frúktósi (sætastur allra sykra) • Galaktósi (hluti af mjólkursykri)

  16. Einsykrur • Munurinn á einsykrunum er ekki heildarfjöldi frumeindanna, heldur niðurröðun þeirra. • Einsykrur og tvísykrur leysast gríðarlega vel upp í vatni, og kallast einu nafni sykur

  17. Einsykrur

  18. Tvísykrur • Oft tengjast svona einsykrur saman og mynda tvísykrur • Tvísykrurnar eru líka þrjár, og er glúkósi hluti af þeim öllum • Maltósi (glúkósi + glúkósi) • Súkrósi / sakkarósi (borðsykur) (glúkósi + frúktósi) • Laktósi (mjólkursykur) (glúkósi + galaktósi)

  19. Tvísykrur • Efnaformúla fyrir tvísykrur er C12H22O11. • Þannig að þegar tvær einsykrur tengjast saman myndast tvísykra og vatn. • C6H12O6 + C6H12O6  C12H22O11 +H2O. • Afvötnun: Sykrur tengdar saman (myndast vatn). • Vatnsrof: Sykrur brotnar í sundur (þarf vatn).

  20. Fjölsykur • Auk sykurs eru ýmsar fjölsykrur til, sumar gerðar úr þúsundum einsykrueiningum, oftast nær eingöngu úr glúkósaeiningum. • Þrjár gerðir fjölsykra eru mikilvægar • Mjölvi (flókin kolvetni í plöntum) • Beðmi (trefjar) • Glýkogen (vöðvamjölvi) • Formúla þessara eininga er (C6H10O5)n þar sem n stendur fyrir fjölda einsykranna í sameindinni • Munurinn á þessum sameindum er að tengin á milli eininganna eru ekki á sama stað

  21. Fjölsykur • Mjölvi er forðanæring plantna, sem leysist ekki í vatni. • Mjölvi er aðaluppistaðan í fæðu manna, þar sem hann finnst í miklu magni í kartöflum, hveiti, hrísgrjónum og baunum. • Við meltingu sundrast mjölvinn í glúkósareiningar sem líkaminn tekur upp

  22. Fjölsykur • Beðmi, eða sellúlósi er uppistaðan í frumuveggjum plantna. • Því finnst hann í öllu grænmeti og ávöxtum. • Beðmi sundrast ekki í meltingarvökva manna og flestra dýra. • Beðmi er það sem kallast trefjar, og er þrátt fyrir að meltast ekki, mikilvægur hluti í matarræði.

  23. Fjölsykur • Glýkogen fynnst í vöðvum og lifur dýra, og er aukaforði fyrir kolvetni í líkamanum • Helsta hlutverk sykra er orkugjafi. Einnig flytja þau með sér nauðsynleg trefjaefni. (Flókin kolvetni eru trefjarík).

  24. Fita (lípíð) • Lípíð er samheiti um öll efni sem leysast illa í vatni • Eins og sykrur eru þær gerðar úr súrefni, vetni og kolefni, en hlutfall súrefnis er minna en hjá sykrum.

  25. Fita (lípíð) • Algengustu fitunar eru efnasambönd úr fitusýrum og glýseróli. • Algengar fitur í líkamanum eru • Þríglýseríð • Fósfólípíð Þríglýseríð er algengasta fitan. Hún er t.d. forðafita okkar og mest öll fitan sem við fáum úr matnum

  26. Fósfólípíð • Fosfólípíð er oft táknað sem höfuðfætla þ.e. hringur með tveimur tveimur endum úr. Þar sem hringurinn táknar fosfathópinn en endarnir/fæturnir tákna fitusýrurnar. • Fosfathópurinn er vatnssækinn (samlagast vatni). En endarnir eru vatnsfælnir. • Fosfólípíð eru aðaluppistaðan í frumuhimnunni, og er því mjög mikilvæg gerð fitu

  27. Fita (lípíð) • Það fer síðan eftir gerð fitusýranna hvort fitan sé föst (mettuð) eða fljótandi (ómettuð) við herbergishita. • Fita getur verið mettuð, einómettuð eða fjölómettuð, og fer það eftir fjölda tvítengja í kolefniskeðjunni.

  28. Fita (lípíð) • Mettuð fita er með öll kolefnin í keðjunni tengd við vetni (nema sýruhópinn á endanum (COOH)), þ.e. kolefnin eru mettuð af vetni. • Þumalputtaregla: mettuð fita er hörð við herbergishita

  29. Fita (lípíð) • Ómettaðar fitusýrur eru hinsvegar með tvítengi einhverstaðar í kolefniskeðjunni. • Einómettaðar fitusýrur eru með ein títengi, fjölómettaðar fitusýrur eru með fleiri. • Þumalputtaregla: ómettuð fita er fljótandi við stofuhita

  30. Fita (lípíð) • Omega – 3 og Omega – 6 eru lífsnauðsynlegar fjölómettaðar fitusýrur. Ómettaðar fitusýrur • Fjölómettaðar fitusýrur hafa fleiri en eitt tvítengi • Einómettaðar f.s. hafa eitt tvítengi • Mettaðar f.s. hafa hinsvegar engin tvítengi

  31. Fita (lípíð) • Mikilvægur eiginleiki fitu er að fitusýruendarnir eru vatnsfælnir (forðast vatn) en glýseról endinn er vatnssækinn (sækir í vatn). • Vax er samheiti um stórar lípíðsameindir. • Vax hefur ekki glýseról, heldur aðrar en áþekkar sameindir. • Vax er t.d. í ofanjaðarhlutum plantna, og virkar sem vatnsþéttir (vaxjakki)

  32. Fita (lípíð) • Sterar er mikilvægur flokkur lípíða • Í sterum eru ekki fitusýrur • Sterar eru t.d. kynhormón og kólesteról

  33. Skipting lípíða • Skipta má lípíðum í tvo flokka eftir hlutverkum • Forðafita • líffærafita

  34. Fita (lípíð) • Forðafita er aðal orkuforði líkamans og safnast saman í fituvef. • Fitan er frekar langtímaforði, og við getum haft mun meira af fitu en nokkurn tíman af glýkógeni • Forðafitan einangrar líkamann einnig gegn kulda og ver hann og einstök líffæri.

  35. Fita (lípíð) • Líffærafita, er í raun ekki eiginleg fita (þríglýseríð), heldur úr öðrum lípíðum s.s. fosfórípíðum. • Líffærafitan er fastur og ómissandi hluti af öllum frumum. • Hlutverk fitu • er mjög orkurík • er orkuforði dýra • útvegar líkamanum fituuppleysanleg vítamín. (A,D,E og K) • gefur lífsnauðsynlegar fitusýrur, línólsýru og línólensýru. • verndar líffæri gegn hitasveiflum (hita einangrandi) og höggum. • byggingarefni frumuhimnunnar (fosfólípíðin)

  36. Prótein • Prótein eru langar keðjur (fjölliður) af amínósýrum (a.s.). Yfirleitt eru mörg hunduðir a.s. í einu próteini. • Amínósýrurnar eru 20 talsins • Þar af eru 8 taldar lífsnauðsynlega (þ.e. getum ekki nýmyndað þær úr öðrum a.s.), og þurfum við að fá þær úr fæðunni. • Þessar 20 a.s. raðast svo á mismunandi hátt saman og mynda þannig mismunandi prótein

  37. Amínósýrur • Amínósýrur eru gerðar úr • amínóhóp (NH3) • karboxýlhóp (COOH) • Miðlægu kolefni • breytilegum hóp, en í honum liggur munurinn á milli mismunandi a.s.

  38. Prótein • Það eru próteinin sem gera okkur mismunandi, því engir tveir einstaklingar eru gerðir úr nákvæmlega eins próteinum • Öll lífsstarfsemin er háð próteinum, og eru þau með mörg og fjölbreytt hlutverk

  39. Hlutverk próteina • Prótein eru byggingarefni frumunnar • Þau eru næring • Prótein flytja efni og jónir í gegnum himnur • þau eru burðarefni, t.d. fyrir blóðfitu og stera • þau eru hormón • Þau eru mótefni, sem ráðast á sýkla og eyða þeim • Þau eru hreyfifæri, svipur og bifhár • Þau eru ensím, en ensím hraða efnahvörfum

  40. Ensím • Ensími eru prótein sem hraða efnahvörfunum með því að lækka virkjunarorkuna sem þarf til að hrinda því af stað • Þar með stórlega aukast líkurnar á að efnahvarfið gerist => þau gerast hraðar og oftar • Sum efnahvörf gerast alls ekki ef ensím vantar

  41. Ensím • Ensím getur: • tengt saman mismunandi sameindir (hvarfefni) í nýtt efni (myndefni) • klofin sameindir í sundur og myndað þannig nýtt efni • Breytt sameind, svo að við höfum eitt hvarfefni og eitt myndefni • A + B + ensím  C + ensím • D + ensím E + F + ensím • A + ensím  B + ensím

  42. Ensím • Hvernig virkar ensím? • Hvarfefnið (hvarfefnin, einnig kallað viðfang) sest á hvarfstað ensímsins, sem flýtir efnahvarfinu með því að annaðhvort flýta fyrir tengingu efnanna, breytingu eða sundrun þess. • Afurðin kallast þá myndefni (einnig kallað afurð)

  43. Ensím • Nokkur atriði um ensím • Ensím eru sértæk, þ.e. hvert þeirra hvetur bara fyrir einni gerð af efnahvarfi • Þau eru endurnýtanleg, þau eyðast ekki við efnahvarfið sem á sér stað • Þau eru viðkvæm fyrir breytingum á hita og sýrustigi, því það ummyndar próteinin (breytir lögun þeirra). Þetta kallast eðlissvipting. • Sérstök prótein, stilliprótein (modulators) geta haft mikil áhrif á virkni ensímsins með því að annaðhvort auka virkni þess eða hindra hana.

  44. Sýrustig pH skalinn pH<7 = súrt pH>7 = basískt Basískt Súrt Hlutlaust 0 7 14 Sterk sýra veik sýra veikur basi sterkur basi pH stig

More Related