1 / 28

16. Kafli: Æðakerfið

16. Kafli: Æðakerfið. LOL 203 Guðrún Narfadóttir. Hlutverk blóðæða. Mynda lokað pípukerfi sem flytur blóð frá hjarta slagæðar um vefi slagæðlingar, háræðar og bláæðlingar til hjarta bláæðar Sjá um skipti á efni milli blóðs og vefja

ronli
Download Presentation

16. Kafli: Æðakerfið

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. 16. Kafli: Æðakerfið LOL 203 Guðrún Narfadóttir

  2. Hlutverk blóðæða • Mynda lokað pípukerfi sem flytur blóð • frá hjarta • slagæðar • um vefi • slagæðlingar, háræðar og bláæðlingar • til hjarta • bláæðar • Sjá um skipti á efni milli blóðs og vefja • Næringarefni og O2 flæða úr háræðum um millifrumuvökva og inn í líkamsfrumur • Úrgangsefni og CO2 flæða frá vefjum um millifrumuvökva og inn í háræðar

  3. Slagæðar og slagæðlingar • Slagæðar (arteriae) flytja alltaf blóð frá hjarta • Þrjú lög mynda slagæðar: • Innhjúpur (tunica intima) • úr einfaldri flöguþekju auk grunnhimna • Miðhjúpur (tunica media) • úr vöðvalagi og teygjanlegum bandvef (þykkasti hjúpurinn) • Úthjúpur (tunica externa/atventitia) • úr bandvef • Slagæðlingar (arteriolae) • Eru grennri en slagæðar • Miðla blóði til háræða • Hafa mikil áhrif á blóðþrýsting

  4. Háræðar (capillariae) • Smásæjar æðar úr einfaldri flöguþekju og grunnhimnu • Sjá um skipti á efni milli blóðs og vefja • Þrengivöðvar slagæðlinga (precapillary sphincters) stjórna blóðflæði til háræða • Skipti á efni milli blóðs og vefja: • Flæði (diffusion) þar sem efni fara úr meiri styrk í minni • Síun (filtration) á vökva út úr háræðum slagæðamegin vegna vökvaþrýstings • Osmótískur þrýstingur blóðsins dregur vökva úr vefjum og aftur inn á blóðrásina bláæðamegin (reabsorbtion)

  5. Bláæðar og bláæðlingar • Bláæðlingar (venulae) myndast við sameiningu háræða • Flytja blóð til bláæða • Bláæðar (venae): • Flytja blóð til hjarta • Eru úr þrem lögum eins og slagæðar • Miðlagið er þunnt, en ysta lagið er þykkast • Æðalokur úr innhjúp hindra bakflæði blóðsins • Lokugallar geta valdið æðahnútum

  6. Bláæðaaðfall (venous return) • Bláæðaaðfall það blóðmagn sem bláæðar skila til hjartans • Í bláæðum er þrýstingur lágur • Þættir sem drífa blóðið úr bláæðum til hjarta: 1. Dælustarfsemi hjartans 2. Vöðvapumpan • Samdráttur í beinagrindarvöðvum þrýstir á bláæðar 3. Öndunarhreyfingar • Við innöndun fellur þrýstingur í brjóstholi, en við það eykst bláæðaaðfall

  7. Blóðþrýstingur (BÞ) • Samdráttur í sleglum hjartans veldur blóðþrýstingi • Þrýstingurinn (mældur í millimetrum kvikasilfurs) er hæstur í ósæð og stærri slagæðum en fellur með aukinni fjarlægð frá vinstri slegli: • Ósæð: 120 mmHg í systolu og 80 mmHg í diastolu • Háræðar: 35 mmHg (enginn munur á systolu og diastolu) • Bláæðar: 5-10 mmHg • Hægri gátt: 0 mmHg • Blóð flæðir alltaf undan þrýstingsfallanda

  8. Þættir sem ákvarða blóðþrýsting • Blóðmagn • Því meira blóðmagn, því hærri þrýstingur (og öfugt) • Útfall hjarta (ÚH) • Því meira blóð frá hjarta á mín. því hærri þrýstingur • Viðnám í æðum (R) • Því meira viðnám, því hærri þrýstingur BÞ = ÚH x R

  9. Viðnám í æðum • Viðnám í æðum skapast vegna núnings milli blóðs og æðaveggja • Þættir sem hafa áhrif á viðnám í æðum • Seigja (þykkt) blóðsins • Aukin seigja eykur viðnám • Þvermál æða • Því þrengri æð, því meira viðnám • Heildarlengd æða • Viðnám eykst með aukinni heildarlengd æða

  10. Stjórnun blóðþrýstings • Blóðþrýstingi og blóðflæði er stjórnað með afturvirkum hætti af taugum og innkirtlum. Auk þess hafa staðbundnir þættir áhrif • Hjarta- og æðastillistöð sem er staðsett í medulla oblongata hefur áhrif á: • Hjartsláttartíðni • Slagmagn hjartans • Þvermál æða

  11. Aðlæg taugaboð til hjarta- og æðastillistöðvar • Frá æðri stöðvum heilans • T.d.aukin streita  aukin tíðni boða • Frá líkamsstöðunemum í liðamótum og vöðvum • aukin hreyfing  aukin tíðni boða • Frá þrýstinemum (barorecetors) í ósæð og innri hálsslagæð • hærri BÞ  aukin tíðni boða • Frá efnanemum (chemorecetors) í ósæð og hálsslagæð • lækkað O2, hækkað CO2 og lækkað pH  aukin tíðni boða

  12. Frálæg taugaboð frá hjarta- og æðastillistöð • Til hjarta • Sympatískar taugar auka tíðni og slagkraft hjartans  hækkun á BÞ • Parasympatískar taugar draga úr hjartsláttartíðni  lækkun á BÞ • Til æða • Sympatískar taugar draga saman æðar (vasoconstrictio)  hækkun á BÞ

  13. Hormónastjórnun blóðþrýstings • Renín- angíótensín- aldósterón kerfið • Þegar BÞ lækkar, losnar renín frá nýrum Renín og angiotensin virkja hormónið angiotensin II Angiotensín II hækkar BÞ með því að • Draga saman æðar • Örva myndun á aldosteróni sem eykur endurupptöku á natríum í nýrum • Adrenalín og noradrenalín frá nýrnahettumerg • Sympatískar taugar auka losun. Hormónin hækka BÞ með því að auka útfall hjarta og draga saman æðar • ADH (vasopressin) frá afturhluta heiladinguls • Hækkar BÞ með því að auka blóðmagn og draga saman æðar • Atrial natriuretic peptide (ANP) • Lækkar BÞ með því að víkka æðar og auka losun vatns og salts

  14. Staðbundin stjórnun á blóðflæði • Staðbundnir þættir í vef (kemískir eða fýsískir) geta valdið breytingu á blóðflæði til vefjarins, án þess að boð frá stjórnstöð komi til: • Í vinnandi vefjum er mikill bruni sem leiðir til: 1. Aukins styrks CO2 2. Falls í pH gildi (vefurinn súrnar) 3. Aukins hita • Ofangreindir þættir valda æðavíkkun (vasodilation) og þar með auknu blóðflæði til vefjarins • Frumur geta auk þess losað efni sem ýmist valda æðavíkkun eða æðasamdrætti

  15. Blóðþrýstingsmælingar • Slagæðar þenjast út og skreppa saman í takt við hjartsláttinn • Þetta kallast púls • Púls þreifast þar sem slagæðar liggja nálægt yfirborði • Eðlilegur hvíldarpúls er um 75 slög/mín • Blóðþrýstingur er þrýstingur sem blóðið veldur á slagæðaveggi þegar ventriculus sin. er í systolu / diastolu • Eðlilegur hvíldarblóðþrýstingur er 120/80 mmHg

  16. Hringrásir blóðsins • Blóðið fer eftir 2 hringrásum: • Meginhringrás (systemic circulation) • Lungnahringrás (pulmonary circulation)

  17. Meginhringrás • Flytur súrefnisríkt blóð frá ventriculus sin. til allra líkamshluta og súrefnissnautt blóð til baka til atrium dxt. • Aorta flytur súrefnisríkt blóð frá ventriculus sin. • frá aorta greinast allar slagæðar meginhringrásar • Þrjár bláæðar taka við súrefnissnauðu blóði meginhringrásar og flytja það til atrium dxt.: • Vena cava superior (tekur við blóði ofan þindar) • Vena cava inferior (tekur við blóði neðan þindar) • Sinus coronarius (tekur við blóði frá hjartavöðvanum)

  18. Aorta (ósæð) • Stærsta slagæð líkamans • Skiptist í fjóra hluta 1. aorta ascendens (rismeginæð) 2. arcus aorta (ósæðarboga) 3. aorta thoracicae (brjóstmeginæð) 4. aorta abdominalis (kviðmeginæð) 3. + 4. = aorta descendens (fallmeginæð)

  19. 3 slagæðar greinast frá arcus aorta • Truncus brachiocephalicus sem klofnar í  • arteria subclavia dxt. ( hægri handleggur) og • arteria carotis communis dxt. ( hægri hlið höfuðs og háls) • Arteria carotis communis sin. ( vinstri hlið höfuðs og háls) • Arteria subclavia sin. ( vinstri handleggur)

  20. Greinar frá aorta descendens • Frá aorta descendens greinast æðar til allra líffæra í brjóst- og kviðarholi. • Sumar æðarnar eru paraðar, aðrar eru óparaðar • Óparaðar æðar sem koma úr aorta abdominalis • Truncus coeliacus greinist í þrjár æðar sem flytja blóð tillifrar, vélinda, milta, briskirtils og maga • Arteria mesenterica superior  smáþarmar og hluti ristils • Arteria mesenterica inferior  hluti ristils og endaþarmur

  21. Slagæðar til útlima • Efri útlimir: • Arteria subclavia  • Arteria axillaris (holhaldarslagæð)  • Arteria brachialis (upparmsslagæð)  • Arteria ulnaris og a. radialis • Neðri útlimir: • Við L4 greinist aorta  • Arteria iliaca communis • Arteria iliaca externa  • Arteria femoralis  • Arteria tibialis

  22. Bláæðar • Bláæðar meginhringrásar eru ýmist djúpar eða grunnar • Djúpu æðarnar liggja samsíða slagæðum og bera sömu nöfn og þær • Grunnu æðarnar liggja undir húðinni, þær eru notaðar til lyfjagjafa og blóðtöku • Bláæðar tengjast innbyrðis og mynda flókið net

  23. Bláæðar sem flytja blóð til atrium dxt. • Sinus coronarius (kransstokkur) • Flytur O2 snautt blóð frá hjartavöðvanum • Vena cava superior (efri holæð) • Tekur við O2 snauðu blóði frá öllum líkama ofan þindar • Vena cava inferior (neðri holæð) • Tekur við O2 snauðu blóði frá öllum líkama neðan þindar

  24. Helstu bláæðar sem flytja blóð frá höfði • Vena jugularis externa (ytri hóstarbláæð) • Tekur við blóði frá höfði utan við höfuðkúpu • Vena jugularis interna (innri hóstarbláæð) • Tekur við blóði frá höfði innan við höfuðkúpu Ofangreindar æðar sameinast vena subclavia og myndast við það vena brachiocephalica (bláæð arms og höfuðs)

  25. Helstu bláæðar efri útlima • Djúpar æðar: • Vena radialis og vena ulnaris  • Vena brachialis  • Vena axillaris  • Vena subclavia • Grunnar æðar: • Vena basilica liggur ölnarlægt og vena cephalica liggur sveifarlægt. Þessar tvær æðar: • tæmast í v. axillaris • tengjast í olnbogabót með Vena intermedia cubiti, (millibláæð olnbogabótar) en sú æð er oftast notuð til blóðtöku

  26. Helstu bláæðar sem flytja blóð frá neðri útlimum • Djúpar æðar: • Æðar frá legg tæmast í vena femoralis  • Vena iliaca communis • Grunnar æðar • Vena saphena magna og vena saphena parva tæmast í vena femoralis

  27. Lungnahringrás • Súrefnissnautt blóð fer frá ventriculus dxt. eftir truncus pulmonalis út í tvær lungnaslagæðar (arteriae pulmonales dst. et sin.) til lungna • Súrefnisríkt blóð kemur frá lungum eftir fjórum lungnabláæðum (venae pulomales) til atrium sin.

  28. Portæðakerfi lifrar • Tvær æðar flytja blóð til lifrar • Arteria hepatica flytur lifrinni súrefnisríkt blóð • Vena porta hepatica flytur blóð frá meltingarfærum og milta til lifrar • Ein æð flytur blóð frá lifur • Vena hepatica (lifrarbláæð), sem tæmist í vena cava inferior

More Related